Fótbolti

Mikilvægur sigur hjá Portland | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Dagný lék allan leikinn í nótt.
Dagný lék allan leikinn í nótt. mynd/heimasíða portland
Dagný Brynjarsdóttir lék allan leikinn fyrir Portland Thorns sem vann 1-0 sigur á Seattle Reign í bandarísku kvennadeildinni í fótbolta í nótt.

Sigurinn var mikilvægur fyrir Portland eftir tvo tapleiki í röð.

Liðið situr á toppi deildarinnar með 29 stig, þremur stigum á undan Washington Spirit sem á tvo leiki til góða á Portland.

Danski framherjinn Nadia Nadim skoraði eina mark leiksins í nótt með laglegum skalla á 74. mínútu.

Dagný var sem áður sagði í byrjunarliði Portland og lék allan leikinn. Hún hefur leikið 14 af 15 leikjum Portland á tímabilinu og skorað fjögur mörk.

Allt það helsta úr leiknum má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×