Enski boltinn

Dagur í lífi Paul Pogba | Myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það var nóg að gera hjá Paul Pogba í gær.
Það var nóg að gera hjá Paul Pogba í gær. vísir/getty
Gærdagurinn mun líklega renna seint úr minni Paul Pogba. Þá varð hann dýrasti knattspyrnumaður allra tíma.

Man. Utd keypti hann þá aftur til félagsins frá Juventus og greiddi fyrir hann um 90 milljónir punda.

Man. Utd hefur auglýst nýju stjörnuna sína rækilega síðan í gærkvöldi og hefur markaðsstarfi félagsins verið hrósað mikið.

Gærdagurinn var að sjálfsögðu allur tekinn upp og er þegar búið að birta stutt myndband á Twitter-síðu félagsins. Það má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir

Rappað um Pogba sem verður númer sex

Pogba hrósar sér af því að hafa hent Íslandi af EM í rapplagi sem var gefið út í nótt í tilefni að því að Pogba fór aftur til Man. Utd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×