Fótbolti

Marco Materazzi staddur á Íslandi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Marco Materazzi, fyrrum varnarmaður ítalska landsliðsins, er staddur hér á landi en hann birti mynd af sér við Hraunfossa nú fyrr í kvöld.

Materazzi er þekktastur fyrir atvik í úrslitaleik HM 2006 þegar Zinedine Zidane skallaði hann í bringuna þegar Ítalía hafði betur gegn Frökkum.

Landsliðsferli Materazzi lauk tveimur árum síðar en hann spilaði í áratug með Inter á Ítalíu en einnig með Perugia og Everton.

Materazzi hefur síðustu daga verið á ferð um Noreg eins og sjá má á Instagram-síðu hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×