Enski boltinn

„Það ætti að henda Mourinho í fangelsi“

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það gustar alltaf um Jose Mourinho.
Það gustar alltaf um Jose Mourinho. vísir/getty
Það eru margir reiðir yfir meðferð Jose Mourinho, stjóra Man. Utd, á Þjóðverjanum Bastian Schweinsteiger.

Hann skrifaði undir þriggja ára samning við Man. Utd síðasta sumar en síðan Mourinho tók við hefur hann æft einn og með U-23 ára lið United.

Sjá einnig: Svona yrði ekki komið fram við leikmenn hjá Bayern

„Þetta er bara einelti,“ sagði Slóveninn Dejan Stefanovic hjá samtökum atvinnuknattspyrnumanna.

„Í Slóveníu þá hefðum við kært Mourinho fyrir svona meðferð og farið fram á hæstu refsingu. Þriggja ára fangelsi.“

Mourinho hefur ekkert viljað tjá sig um málið en þarf að mæta á blaðamannafund á morgun og þar verður hann klárlega spurður út í málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×