Fótbolti

Oscar var hetja Chelsea

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Oscar á ferðinni í nótt.
Oscar á ferðinni í nótt. vísir/getty
Tveir leikir fóru fram í International Champions Cup í nótt þar sem Chelsea og Real Madrid unnu fína sigra.

Chelsea skellti AC Milan, 3-1, í Minnesota. Bertrand Traore kom Chelsea yfir en Giacomo Bonaventura jafnaði leikinn fyrir hlé.

Það var aftur á móti Brasilíumaðurinn Oscar sem kláraði dæmið í síðari hálfleik með tveim mörkum. Það fyrra kom úr vítaspyrnu.

Í New Jersey náði Real Madrid að leggja Bayern, 1-0, með frábæru marki frá Danilo.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×