Fótbolti

Nýi maðurinn bjargaði andliti Englandsmeistaranna

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ahmed Musa í leiknum í kvöld.
Ahmed Musa í leiknum í kvöld. Vísir/Getty
Barcelona vann nokkuð sannfærandi sigur á Englandsmeisturum Leicester í International Champions Cup æfingamótinu í dag, 4-2.

Börsungar byrjuðu af miklum krafti og komust í 3-0 forystu í fyrri hálfleik með tveimur mörkum Munir El Haddadi og einu frá Luis Suarez.

Nígeríumaðurinn Ahmed Musa, sem kom til Leicester frá CSKA Moskvu í sumar, kom inn á í upphafi síðari hálfleiks og átti eftir að láta til sín taka.

Hann skoraði eftir að hafa verið inni á vellinum í þrjár mínútur og minnkaði muninn í 3-2 með marki á 66. mínútu. Rafa Mujica innsiglaði svo sigur Barcelona undir lokin.

Síðar í kvöld mætast Bayern München og Real Madrid í sama móti og verður leikurinn í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×