Fótbolti

Áfrýjar fimm leikja Evrópubanni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Lennon er mikill skaphundur.
Lennon er mikill skaphundur. vísir/getty
Hibernian er ekki sátt við að UEFA hafi sett þjálfara félagsins, Neil Lennon, í fimm leikja Evrópubann.

Lennon var rekinn upp í stúku í síðusta mánuði er Hibernian var að spila við Bröndby. Hann lenti þá í miklu rifrildi við dómara leiksins.

Lennon var upp í stúku á seinni leiknum en Hibernian féll að lokum úr leik eftir vítaspyrnukeppni gegn Valsbönunum.

Fimm leikja bannið þykir forráðamönnum Hibernian allt of harður dómur og þess vegna hefur félagið áfrýjað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×