Fótbolti

Alex Song farinn til Rubin Kazan

Stefán Árni Pálsson skrifar
Alex Song í leik með West Ham.
Alex Song í leik með West Ham. Vísir/Getty
Rússneska félagið Rubin Kazan hefur gengið frá samningi við miðjumanninn Alex Song en hann kemur frítt til félagsins.

Song hefur verið í eigu Barcelona undanfarinn ár en verið lánaður til West Ham síðustu tvö tímabil.

Þessi 28 ára miðjumaður fékk samningi sínum við Barcelona rift og gekk í raðir Rubin Kazan. Song yfirgaf Arsenal árið 2012 eftir að hafa skrifað undir fimm ára samning við Barcelona.

Hann lék 65 leiki fyrir Barcelona og skoraði í þeim eitt mark.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×