Enski boltinn

Mahrez framlengir við Leicester

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Mahrez skoraði í tapinu fyrir Hull á laugardaginn.
Mahrez skoraði í tapinu fyrir Hull á laugardaginn. vísir/getty
Alsíringurinn Riyad Mahrez hefur skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við Englandsmeistara Leicester City.

Mahrez var frábær á síðasta tímabili og átti stóran þátt í að Leicester varð Englandsmeistari í fyrsta sinn í sögu félagsins.

Mahrez skoraði 17 mörk og gaf 11 stoðsendingar og var valinn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar.

Mahrez hefur verið orðaður við ýmis lið í sumar en nú er ljóst að hann verður áfram í herbúðum Leicester.

Mahrez bætist þar með í hóp fjölda lykilmanna Leicester sem hafa skrifað undir nýjan samning við félagið í sumar. Þeirra á meðal eru markvörðurinn Kasper Schmeichel, fyrirliðinn Wes Morgan og markaskorarinn Jamie Vardy. Þá framlengdi knattspyrnustjórinn Claudio Ranieri einnig samning sinn við félagið.

Mahrez skoraði mark Leicester í 2-1 tapinu fyrir Hull City í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á laugardaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×