Enski boltinn

Mané fluttur á sjúkrahús

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mané fagnar markinu gegn Arsenal með Klopp.
Mané fagnar markinu gegn Arsenal með Klopp. vísir/getty
Stuðningsmenn Liverpool fengu vondar fréttir í dag er Sadio Mané meiddist á æfingu.

Mané meiddist á öxl og var fluttur á sjúkrahús. Ekki liggur fyrir hversu alvarleg meiðslin eru.

Senegalinn er 24 ára gamall. Hann var keyptur frá Southampton í sumar og skoraði í sínum fyrsta leik fyrir Liverpool í ensku úrvalsdeildinni.

Markið var af dýrari gerðinni sem og fagnið með stjóranum, Jürgen Klopp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×