Enski boltinn

Hart til í að yfirgefa ensku úrvalsdeildina

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Joe Hart er leiður þessa dagana.
Joe Hart er leiður þessa dagana. vísir/getty
Markvörðurinn Joe Hart virðist ekki eiga neina framtíð hjá Man. City undir stjórn Pep Guardiola.

Guardiola er búinn að henda Hart á bekkinn og hermt er að hann ætli að fá Claudio Bravo frá Barcelona.

Það er enginn skortur á áhuga á markverðinum enska. Bæði Sevilla og Borussia Dortmund eru sögð vilja fá hann í sínar raðir.

Samkvæmt heimildum Sky Sports þá er Hart tilbúinn að yfirgefa ensku úrvalsdeildina og reyna fyrir sér í öðru landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×