Fótbolti

Eiður Smári gæti farið til Indlands

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Eiður Smári á EM.
Eiður Smári á EM. vísir/getty
Eitt af liðunum í indversku ofurdeildinni er sagt vera langt komið með að semja við Eið Smára Guðjohnsen.

Hér er um að ræða liðið FC Pune City samkvæmt goal.com.

Eiður Smári er nýbúinn að rifta samningi sínum við norska félagið Molde og sagði við það tilefni að hann væri ekki viss um hvort hann myndi halda áfram í fótbolta.

Er indverska ofurdeildin var stofnuð á sínum tíma var Eiður orðaður við lið í deildinni. Ekkert varð úr því þá að hann færi þangað.

Eiður Smári hefur meðal annars haldið sér í formi upp á síðkastið með því að æfa með Valsmönnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×