Fótbolti

Vidal og Muller sáu um Dortmund í Ofurbikarnum

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Arturo Vidal og Thomas Muller sáu um Dortmund í 2-0 sigri Bayern Munchen á í þýska Ofurbikarnum í kvöld en leikið var á heimavelli Dortmund en það tók Carlo Ancelotti aðeins einn leik að vinna fyrsta bikar sinn sem stjóri þýsku meistaranna.

Var þetta fimmta árið í röð sem Bayern leikur um Ofurbikarinn og í þriðja sinn sem mótherjinn er Dortmund en Bayern var búið að tapa undanfarin þrjú skipti.

Dortmund var sterkari aðilinn framan af og fengu leikmenn liðsins fjöldan allra færa til að komast yfir en Manuel Neuer var öflugur í markinu og hélt stöðunni markalausri í fyrri hálfleik.

Í seinni hálfleik kom Arturo Vidal Bæjurum yfir þegar hann fylgdi eftir eigin skoti en stuttu áður klúðraði hann sannkölluðu dauðafæri af meters færi.

Tíu mínútum fyrir leikslok bætti Muller við marki þegar hann stýrði skalla Mats Hummels í netið af stuttu færi.

Eftir það sigldu Bæjarar sigrinum rólega heim og fögnuðu að lokum sigrinum og fyrsta bikar ársins í Þýskalandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×