Enski boltinn

Crystal Palace samþykkir tilboð Everton í Bolasie

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Kantmaðurinn Yannick Bolasie er á leið í læknisskoðun hjá Everton en samkvæmt SkySports samþykkti Crystal Palace í morgun tilboð upp á 30 milljónir punda í Bolasie.

Bolasie sem hefur leikið með Crystal Palace undanfarin fjögur ár verður dýrasti leikmaður í sögu Everton en hann tekur þann titil af Romelu Lukaku sem Everton greiddi 28. milljónir punda fyrir frá Chelsea fyrir tveimur árum.

Bolasie hefur leikið 143 leiki fyrir Crystal Palace á undanförnum fjórum árum og skorað á þeim tíma 13 mörk en hann kom inn af varamannabekknum í 0-1 tapi gegn W.B.A í gær.

Bolasie á að baki 27 landsleiki fyrir Kongó en hann skrifaði undir nýjan samning við Crystal Palace síðasta sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×