Enski boltinn

Hitað upp fyrir stórleik dagsins á Stöð 2 Sport

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Fyrsti stórleikur tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni fer fram í dag þegar Arsenal tekur á móti Liverpool í Lundúnum.

Leikurinn hefst klukkan 15.00 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Hitað verður sérstaklega upp fyrir leikinn í dag en hún verður í umsjón Harðar Magnússonar. Gestir hans í dag verða Arnar Gunnlaugsson og Bjarni Guðjónsson, sem verða í sérfræðingateymi Stöðvar 2 Sports í vetur.

Upphitun hefst um klukkan 14.30, eða skömmu eftir að leik Bournemouth og Manchester United lýkur. Sérfræðingarnir gera svo leikinn upp að honum loknum.

Öll fyrsta umferð ensku úrvalsdeildarinnar verður svo til umfjöllunar í Messunni á Stöð 2 Sport á mánudagskvöld. Guðmundur Benediktsson verður umsjónarmaður hennar en honum til halds og trausts á mánudagskvöldið verða Hjörvar Hafliðason og áðurnefndur Bjarni Guðjónsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×