Enski boltinn

Sunderland losar Man Utd við tvo leikmenn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
McNair og Love í búningi Sunderland.
McNair og Love í búningi Sunderland. mynd/sunderland
Sunderland hefur gengið frá kaupunum á tveimur leikmönnum Manchester United.

Þetta eru varnarmennirnir Paddy McNair og Donald Love en þeir skrifuðu báðir undir fjögurra ára samning við Sunderland. Félagið borgaði samtals 5,5 milljónir punda fyrir þá félaga.

McNair spilaði talsvert með United undanfarin tvö tímabil en Love fékk fá tækifæri með liðinu.

McNair spilaði alls 27 leiki fyrir United. Hann hefur leikið 11 A-landsleiki fyrir Norður-Írland og spilaði á EM í Frakklandi í sumar.

Love lék aðeins tvo leiki fyrir United. Hann á nokkra leiki að baki fyrir yngri landslið Skota.

Sunderland sækir Manchester City heim í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á laugardaginn.


Tengdar fréttir

Kaupir Moyes Fellaini í þriðja sinn?

David Moyes, nýráðinn knattspyrnustjóri Sunderland, hefur áhuga á að endurnýja kynnin við Belgana Maraoune Fellaini og Adnan Januzaj, leikmenn Manchester United.

Man. Utd fór illa með mig

Knattspyrnustjórinn David Moyes segist ekki hafa fengið sanngjarna meðhöndlun hjá Man. Utd er hann var stjóri þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×