Fótbolti

Birkir kominn á blað í Sviss

Anton Ingi Leifsson skrifar
Birkir í búningi Basel.
Birkir í búningi Basel. vísir/getty
Birkir Bjarnason skoraði eitt marka Basel í 3-0 sigri á Young Boys í svissnesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Staðan var markalaus í hálfleik, en Michael Lang kom Basel yfir á 55. mínútu og fjórum mínútum síðar tvöfaldaði Birkir Bjarnason forystuna.

Milan Vilotic skoraði svo sjálfsmark og tryggði Basel 3-0 sigur, en þeir eru á toppi deildarinnar með tólf stig eftir fjóra leiki.

Young Boys er í þriðja sætinu með sex stig, en þetta var fyrsta mark Birkis á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×