Lífið

Sigga Kling svarar spurningum lesenda í beinni klukkan 13

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sigríður Klingenberg svarar spurningum í dag.
Sigríður Klingenberg svarar spurningum í dag. vísir
Stjörnuspár Sigríðar Klingenberg spámiðils hafa notið gríðarlega vinsælda undanfarin ár. Mánaðarlega spáir hún fyrir lesendum Vísis og Fréttablaðsins, í formi texta og myndbands, en spárnar fyrir september birtust í Fréttablaðinu í morgun.

Sigga leggur leggja áherslu á að fólk geri það besta úr því sem það les, nýta sér orkuna, klappa sér á bakið og elska lífið. Spárnar einkennast af gleði, krafti, orku og jákvæðni en það eru skilaboðin sem hún vill senda til samfélagsins.

Vísir fer af stað með skemmtilega nýjung í dag en hægt verður að spjalla við Siggu Kling í beinni útsendingu á Facebook Live klukkan 13. Lesendum býðst þar að bera fram spurningar um allt milli himins og jarðar.

Sigga ætlar að gera sitt besta til að svara öllum spurningum og reyna þannig skyggnast inn í líf okkar lesenda. Hún getur einnig sagt ýmislegt um fortíð lesenda og framtíð þeirra ef þeir biðja hana um að rýna í fæðingardag sinn.

Útsendingin verður aðgengileg hér á Vísi en hún fer fram í gegnum Facebook-síðu Vísis klukkan 13.

Lesendur sent inn spurningar í athugasemdarkerfinu hér að neðan og einnig má senda inn spurningar á stefanp@365.is.


Tengdar fréttir

Septemberspá Siggu Kling – Steingeit: Í þér býr elsta sálin

Elsku fallega Steingeitin mín. Það er svolítið algengt að það séu miklar tilfinningar og álag hjá þér í kringum árstíðaskipti; þegar veturinn byrjar, þegar vorið byrjar, þegar sumarið byrjar eða eins og núna, þegar haustið byrjar.

Septemberspá Siggu Kling komin á Vísi!

Stjörnuspár Sigríðar Klingenberg spámiðils hafa notið gríðarlega vinsælda undanfarin ár. Mánaðarlega spáir hún fyrir lesendum Vísis og Fréttablaðsins, í formi texta og myndbands, en spár hennar fyrir septembermánuð má sjá hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×