Fótbolti

Barton settur í þriggja vikna bann

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Barton í leik með Rangers.
Barton í leik með Rangers. vísir/getty
Vandræðagemlingurinn Joey Barton sturlaðist á liðsfundi hjá Rangers á dögunum og það mál er enn að vefja upp á sig.

Barton gjörsamlega missti það og hellti sér yfir félaga sinn Andy Halliday á fundi er verið var að kryfja 5-1 tap liðsins gegn Celtic.

Barton var upprunalega settur í bann fram yfir helgi en Rangers staðfesti í dag að leikmaðurinn yrði settur í þriggja vikna bann.

Barton viðurkenndi að hafa gengið of langt en aðeins degi síðar mætti hann í útvarpsviðtal þar sem hann sagði bannið vera skrítið. Hann hefði ekki gert neitt af sér.

Það hefur nú leitt af sér þriggja vikna bann og menn velta því eðlilega fyrir sér hvort hann eigi afturkvæmt eftir þessa uppákomu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×