Enski boltinn

Danny Drinkwater hrósaði innkomu Slimani

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Tvö mörk í fyrsta leik í byrjunarliði
Tvö mörk í fyrsta leik í byrjunarliði vísir/getty
Islam Slimani gekk til liðs við Leicester City í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í lok ágúst og skoraði tvö mörk fyrir liði í sínum fyrsta byrjunarliðsleik í gær.

Danny Drinkwater samherji Slimani hrósaði nýja liðsfélaga sínum í hástert en Slimani skoraði tvö fyrstu mörkin í 3-0 sigri á Burnley í gær.

Slimani kostaði Leicester 30 milljónir punda en hann kom frá Sporting Lisbon.

„Hann var frábær í sínum fyrsta leik. Hann verðskulaði þessi mörk,“ sagði Drinkwater eftir leikinn í gær.

„Hann passar vel inn í liðið því hann er vinnusamur og góður í fótbolta. Hann hefur æft vel og hjálpar til við leikstíl okkar. Hann er góð viðbót í hópinn.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×