Enski boltinn

Englandsmeistararnir í engum vandræðum með Burnley

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Leicester City skellti Burnley 3-0 og WBA skellti West Ham 4-2 í fimmtu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag.

Islam Slimani kom Leicester yfir í uppbótartíma fyrri hálfleiks og skoraði annað mark strax á þriðju mínútu seinni hálfleiks.

Ben Mee varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark tólf mínútum fyrir leikslok en Jóhann Berg Guðmundsson kom inn á sem varamaður í lið Burnley á 57. mínútu.

Leicester er nú með sjö stig eftir fimm leiki en bæði lið voru með fjögur stig fyrir leikinn.

WBA komst í 4-0 gegn West Ham eftir að hafa verið 3-0 yfir í hálfleik. Nacer Chadli skoraði fyrsta og síðasta markið fyrir WBA en í millitíðinni skoruðu Salomon Rondon og James McClean.

Michail Antonio og Manuel Lanzini minnkuðu muninn fyrir West Ham en nær komst liðið ekki.

WBA fór upp í sjö stig en West Ham er við fallsæti með 3 stig eftir fimm leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×