Enski boltinn

Hitað upp fyrir leiki dagsins í ensku úrvalsdeildinni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Fimm leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Fjórir leikir hefjast klukkan 14:00 og klukkan 16:30 er komið að leik Everton og Middlesbrough á Goodison Park.

Sá leikur verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD líkt og leikur Hull City og Arsenal sem hefst klukkan 14:00.

Manchester City, eina liðið sem er fullt hús stiga í ensku úrvalsdeildinni, verður einnig á ferðinni í dag en lærisveinar Peps Guardiola mæta þá Bournemouth á heimavelli.

Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley sækja Englandsmeistara Leicester City heim og West Brom fær West Ham United í heimsókn.

Í spilaranum hér fyrir ofan er hitað upp fyrir leiki dagsins í ensku úrvalsdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×