Enski boltinn

Everton aftur í annað sætið

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Everton lagði Middlesbrough 3-1 á heimavelli í fimmtu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld.

Everton hefur aðeins tapað tveimur stigum á tímabilinu og er í öðru sæti með 13 stig, tveimur stigum á eftir toppliði Manchester City.

Maarten Stekelenburg markvörður Everton varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 21. mínútu en Gareth Barry jafnaði metin aðeins þremur mínútum síðar. Markverðir beggja liða vildu meina að brotið hefði verið á sér í mörkunum tveimur.

Seamus Coleman kom Everton yfri á 42. mínútu og í uppbótartíma kom Lukaku Everton tveimur mörkum yfir.

Ekkert mark var skorað í seinni hálfleik og því heldur frábær byrjun Everton á tímabilinu áfram.

Middlesbrough er um miðja deild með fimm stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×