Erlent

Sakar eina af stjörnum ruðningsliðsins um nauðgun: Hélt blaðamannafund til að vekja athygli á málinu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Delaney Robinson og Allen Artis.
Delaney Robinson og Allen Artis. vísir
Delaney Robinson er 19 ára nemandi við Háskólann í Norður-Karólínu. Í febrúar tilkynnti hún háskólayfirvöldum og lögreglunni að sér hefði verið nauðgað á skólalóð háskólans á Valentínusardaginn en síðastliðinn þriðjudag, meira en hálfu ári eftir að hún tilkynnti um brotið, hélt hún blaðamannafund til að þrýsta á háskólayfirvöld og lögregluyfirvöld um að gera eitthvað í málinu.

„Ég gerði allt sem fórnarlamb nauðgunar á að gera. Ég tilkynnti um málið. Ég fór í skoðun á neyðarmóttöku nauðgana. Ég gaf skýrslu. Ég vann með lögreglunni og háskólanum en sex mánuðum síðar hefur háskólinn ekki brugðist við,“ sagði Robinson á blaðamannafundinum en með henni voru faðir hennar og lögmaður.

Robinson sagðist koma opinberlega fram með málið til þess að leggja sitt af mörkum til að tryggja réttlátari málsmeðferð í kynferðisbrotamálum í sem koma upp í bandarískum háskólum, en ítrekað hafa komið upp slík mál þar sem mörgum finnst ekki tekið nógu hart á gerendunum.

„Gaf ég honum undir fótinn?“

Gott dæmi er mál Brock Turner sem hlaut sex mánaða fangelsisdóm fyrr á árinu fyrir að nauðga skólasystur sinni á bak við ruslagám á skólalóð Stanford-háskóla. Hann losnaði úr fangelsi á dögunum eftir að hafa afplánað þrjá mánuði af dómnum.

Á blaðamannafundinum sagði Robinson að rannsakendurnir hjá háskólanum hefðu spurt hana niðurlægjandi spurninga þegar málið kom til kasta þeirra.

„Gaf ég honum undir fótinn? Hef ég sofið hjá honum áður? Stunda ég oft einnar nætur gaman? Sagði ég nei? Hvað hef ég sofið hjá mörgum? Þeir komu fram við mig eins og ég væri sá grunaði,“ sagði Robinson.

Þá sagð Robinson að hún hefði orðið mjög reið þgar hún heyrði upptökur af viðtali lögreglunnar við Allen Artis 21 árs gamlan mann sem einnig er nemandi í Háskólanum í Norður-Karólínu og var ein af stjörnum ruðningsliðs skólans. Hann var rekinn úr liðinu á þriðjudag.

Artis gaf sig fram hjá lögreglu

„Þeir voru ekki að saka hann um neitt heldur töluðu við hann á vinalegu nótunum. Þeir sögðu: „Ekki svitna yfir þessu, haltu bara áfram að lifa lífinu og spila ruðning.““

Robinson segir að þrátt fyrir að hún hafi verið að drekka umrætt kvöld, ekki orðin 21 árs gömul, þá gefi það engum rétt til þess að brjóta gegn henni.

„Ég átti ekki skilið að vera nauðgað,“ sagði Robinson.

Maðurinn sem hún sakar um að hafa nauðgað sér fór til lögreglunnar á þriðjudag og var handtekinn grunaður um minniháttar kynferðisbrot og árás. Hann var látinn laus gegn 5000 dollara tryggingu en ekki liggur fyrir hvort hann verði ákærður.

Saksóknari í málinu segir að það hafi verið rannsakað ítarlega en sé enn til rannsóknar. Þá gaf Háskólinn í Norður-Karólínu frá sér yfirlýsingu þar sem kom fram að skólinn tæki allar tilkynningar um kynferðisbrot innan skólans alvarlega.

Hér að neðan má sjá blaðamannafund Robinson.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×