Erlent

Þrettán ára með loftbyssu skotinn til bana af lögreglu

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Getty
Þrettán ára drengur var skotinn til bana af lögregluþjónum í Ohio í nótt. Drengurinn var vopnaður loftbyssu og segir lögreglan að hann hafi dregið hana úr buxnastreng sínum þegar hann var skotinn. Lögreglan var kölluð til á svæðið eftir að hópur drengja hafði framið vopnað rán.

Karlmaður hafði hringt á lögregluna eftir að hópur ungra drengja hafði hótað honum með byssu og rænt hann. Hann vísaði lögregluþjónum á drengina sem flúðu þegar reynt var að tala við þá.

Samkvæmt lögreglunni voru tveir af þremur króaðir af í húsasundi þar sem einn þeirra dró byssu úr buxnastrengnum. Hann var skotinn margsinnis af lögregluþjóni. Drengur var svo fluttur á sjúkrahús þar sem hann var úrskurðaður látinn.

Seinna þegar lögreglan rannsakaði vettvanginn kom í ljós að um loftbyssu var að ræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×