Lífið

Tólfan hvetur þjóðina til að styðja við bakið á Stelpunum okkar

Birgir Olgeirsson skrifar
Íslenska liðið fyrir leik á móti Hvíta-Rússlandi.
Íslenska liðið fyrir leik á móti Hvíta-Rússlandi. Vísir/Vilhelm
Spennan magnast nú fyrir lokaleiki landsliðs kvenna í knattspyrnu fyrir lokaleikina í undankeppni Evrópumótsins. Liðið mun leika gegn Slóveníu á morgun og Skotlandi á þriðjudag, báðir leikir hér heima, en stelpurnar okkar eru í kjörstöðu á toppi síns riðils og geta tryggt sér farseðilinn á Evrópumótið á næsta ári með góðri frammistöðu.

Stuðningssveit landsliðanna, Tólfan, ætlar ekki að láta sitt eftir liggja og mun mæta á báða leikina á Laugardalsvelli og hvetja liðið til sigurs. Tólfan hefur nú sett af stað herferð til að hvetja fólk til að mæta á völlinn og hefur fengið nafntogaða einstaklinga úr þjóðfélaginu til að gera slíkt hið sama en sjá má myndböndin hér fyrir neðan. 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×