Sektuð fyrir að neita að klippa konu með höfuðslæðu Samúel Karl Ólason skrifar 12. september 2016 11:50 Malika Bayan og Merete Hodne. Vísir/AFP
Norsk hárgreiðslukona þarf að greiða 140 þúsund króna (tíu þúsund norskar krónur) sekt fyrir að neita konu með höfuðslæðu um afgreiðslu. Hún var í morgun fundin sek um mismunun, en hún hefði getað verið dæmd í sex mánaða fangelsi. Auk sektarinnar þarf hún að greiða um 70 þúsund krónur í málskostnað. Atvikið átti sér stað í bænum Bryne í suðurhluta Noregs í október í fyrra. Merete Hodne, 47 ára, neitaði að afgreiða Malika Bayan, 24 ára, og vísaði henni frá hárgreiðslustofu sinni. Niðurstaða dómstólsins var á þá leið að Hodne hefði vísvitandi neitað Bayan um afgreiðslu vegna þess að hún væri múslimi. Samkvæmt frétt Aftenposten tjáði hún sig einnig um atvikið á Facebook á sínum tíma. Þar sagðist hún hafa neitað tveimur konum með höfuðslæður um afgreiðslu og að hún vildi ekki hleypa illu inn um sínar dyr.AFP fréttaveitan segir að Hodne ætli sér að áfrýja úrskurðinum. Hodne sagði í dómsalnum að hún sæi höfuðslæður sem pólitísk tákn fyrir hugmyndafræði sem hræddi hana. Ekki sem trúarlegt tákn. Aftenposten hefur eftir Bayan að hún sé mjög ánægð með niðurstöðuna, en að refsingin skipti engu máli. Það sem skipti máli sé að staðfesta að mismunun sé ekki í lagi.
Mest lesið Kári og Sveinn til liðs við Arnar Þór Innlent Starfsfólkið slegið eftir brunann Innlent Horfði á haförn og lax berjast fyrir lífi sínu út um stofugluggann Innlent „Það vill enginn vera eins og Steingrímur J.“ Innlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í Fellsmúla Innlent Rafmagnsleysi á stórum hluta landsins Innlent Ljúfsár hinsta heimsókn í Blóðbankann Innlent Sló út við reglubundið viðhald Innlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Fylgi Sjálfstæðisflokksins aldrei mælst minna Innlent Fleiri fréttir Verulegar líkur á að stórt stríð brjótist út í Miðausturlöndum Þrír ungir Svíar handteknir vegna sprenginganna í Kaupmannahöfn Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Sjá meira