Lífið

Jón fór á kostum í Brennslunni: Samdi lagið Broke á staðnum með Hjörvari

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jón Jónsson var gestur í þættinum Brennslan á FM957 í morgun og ræddi við þá Kjartan Atla Kjartansson og Hjörvar Hafliðason sem eru umsjónamenn þáttarins. Þeir ræddu um allt á milli himins og jarðar og var umræðuefni meðal annars fjármálalæsi, tónlist, tónleikar, íþróttir og gamlir vinnustaðir.

Jón sagði meðal annars frá jólatónleikum sem hann stendur fyrir rétt fyrir jól. Tónlistamaðurinn hefur haldið ótal fyrirlestra fyrir unglinga um fjármálalæsi og hvernig maður eigi að bera virðingu fyrir peningum.

Hann ræddi ítarlega um það og hvernig sniðugt væri fyrir ungt fólk að horfa á peninga.

Að lokum samdi Jón lagið Broke með Hjörvari Hafliðasyni og gerðu þeir það á staðnum. Mjög skemmtilegt atriði sem heyra má hér að ofan. Lagið sjálft hefst eftir 13:45 mínútur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×