Nýr framherji City er reglulega skammaður af mömmu sinni Tómas Þór Þórðarson skrifar 21. september 2016 10:45 Gabriel Jesus fær að heyra það frá móður sinni. vísir/getty
Brasilíski framherjinn Gabriel Jesus er einn efnilegasti framherji heims í dag en það er ein ástæða þess að Pep Guardiola fékk yfirmenn sína til að kaupa strákinn unga frá Palmeiras til Manchester City í sumar. Jesus, sem vann gull með Brasilíu á Ólympíuleikunum í sumar, var keyptur á 27 milljónir punda en hann gengur í raðir City-liðsins í janúar. Hann var kjörinn besti ungi leikmaður brasilísku deildarinnar í fyrra og skoraði bæði í fyrsta leik sínum fyrir Palmeiras sem og brasilíska landsliðið. Það sem heillar þjálfara og sparkspekinga við Jesus er vilji hans til að hlaupa til baka og verjast en það er eiginleiki sem allir þjálfarar elska. Það er líka eins gott fyir hann að sinna varnarvinnunni því móðir hans gefur honum engan afslátt og hundskammar pilt ef hann verst ekki eins og maður. „Það er satt að móðir mín skammar mig þegar ég hleyp ekki til baka,“ segir Jesus í viðtali við The Guardian. „Við erum gríðarlega náin og hún krefst mikils af mér sem er frábært. Hún hrósar mér bara þegar ég á það skilið. Ég er virkilega heppinn að eiga mömmu eins og hana. Hún segir mér alltaf sannleikann sem hjálpar mér mikið.“ Jesus þykir mjög þroskaður miðað við aldur en ein ástæða þess að framherjinn og móðir hans eru svo náin er að hann missti föður sinn sem barn. Móðir hans ól upp Jesus og bræður hans þrjá einsömul. „Fótboltamenn þroskast fyrr en aðrir. Ég óx mjög hratt úr grasi vegna alls þess sem var í gangi heima hjá mér þegar ég var ungur,“ segir Gabriel Jesus.
Enski boltinn Mest lesið Berglindi sagt upp í síma: „Kom mér mjög á óvart“ Íslenski boltinn Heiglar sem ráðast á vinalega Íslendinginn Fótbolti Ben Davies: Synd að hafa ekki spilað með Gylfa Fótbolti Haaland að verða pabbi Fótbolti Bellamy: Jói lyklakippan en kann alveg að tuða Fótbolti „Andlega lúinn“ Jón Daði færist nær Bestu deildinni Íslenski boltinn „Draumur frá því ég var lítill“ Fótbolti Byrjunarlið Íslands: Gylfi á bekknum og Orri og Andri Lucas frammi Fótbolti Grikkir vildu ekki spila við Englendinga vegna fráfalls Baldocks Fótbolti Minnist Baldocks með hlýju: „Honum þótti alltaf vænt um Vestmannaeyjar“ Fótbolti Fleiri fréttir Leikmaður Brighton var nálægt því að deyja um borð í flugvél Saka fór meiddur út af Mazraoui fór í aðgerð vegna hjartavandamála Stjörnulögfræðingur á að bjarga Paqueta frá lífstíðarbanni Milan vill að Zlatan sæki landa sinn frá Manchester Fyrrum leikmaður ÍBV og Sheffield United fannst látinn Leikmaður Chelsea flutti aftur heim til mömmu og pabba Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool Grealish: Ég hefði átt að fara með á EM Félögunum refsað en Jackson sleppur Á skotskónum í framrúðubikarnum Lineker gefur lítið fyrir slúðursögur um framtíð sína Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum Sjá meira