Lífið

Justin Bieber og Sofia Richie hætt saman

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Justin Bieber og Sofia Richie eru ekki lengur að stinga saman nefjum.
Justin Bieber og Sofia Richie eru ekki lengur að stinga saman nefjum. Vísir/Getty
Poppprinsinn Justin Bieber er einhleypur á ný en hann og Sofia Richie eru ekki lengur par. Þetta kemur fram á vef ENews.

Heimildir E! herma að Bieber og Richie hafi aldrei opinberlega verið par. „Þau voru aldrei opinberlega saman, voru meira að skemmta sér saman.“

Bieber og Richie þegar allt lék í lyndiVísir/Getty
Talið er að Bieber hafi ekki viljað vera í sambandi sem stendur og hafi viljað hægja á hlutunum með Richie

Sofia Richie er dóttir Lionel Richie, en hún og Bieber fóru saman til Mexíkó til að halda upp á átján ára afmæli hennar í lok ágúst. 

Þó að samband þeirra hafi verið stutt náði það þó að valda nokkrum usla, en Bieber lokaði Instagram aðgangi sínum í síðasta mánuði eftir að aðdáendur hans höfðu farið ófögrum orðum um Richie.

Bieber er nú á tónleikaferðalagi um Evrópu og aldrei að vita hvort hann opni Instagrammið á ný.


Tengdar fréttir

Hver er þessi Sofia Richie?

Allt í einu eru allir að tala um Sofia Richie en hún er nýja kærasta Justin Bieber.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×