Lífið

Gilbert úrsmiður selur slotið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Skemmtileg eign.
Skemmtileg eign. vísir
ÁS fasteignasala er með 240 fermetra einbýlishús í suðurhlíðum Kópavogs á söluskrá og er kaupverðið 80 milljónir. Húsið er staðsett við Víðihvamm 25 og er í eigu Gilberts Ó Guðjónssonar, úrsmiðs við Laugaveg, og Guðný Maríu Sigurðardóttur.

Um er að ræða eign á frábærum stað í Kópavogi sem er á tveimur hæðum. Fjögur svefnherbergi eru í húsinu og möguleiki að hafa fimm.

Fasteignamat eignarinnar er 55 milljónir og var húsið byggt árið 1980. Bílskúr er við húsið og suðursvalir ásamt rúmgóðum sólpalli. Hér að neðan má sjá nokkrar góðar myndir úr auglýsingu ÁS fasteignasölu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×