Viðskipti innlent

Hefja beint flug milli Keflavíkur og Akureyrar í febrúar

Atli ísleifsson skrifar
Flogið verður sex sinnum í viku milli Akureyrar og Keflavíkur yfir vetrartímann og þrisvar sinnum í viku yfir sumartímann.
Flogið verður sex sinnum í viku milli Akureyrar og Keflavíkur yfir vetrartímann og þrisvar sinnum í viku yfir sumartímann. Mynd/Flugfélag Íslands
Flugfélag Íslands mun í febrúar hefja beint innanlandsflug milli Keflavíkur og Akureyrar í tengslum við millilandaflug í Keflavík. Flogið verður allan ársins hring.

Í tilkynningu frá Flugfélagi Íslands segir að auk þess hagræðis sem þetta hafi í för með sér fyrir íbúa á Norðurlandi sem vilja nýta sér millilandaflug, sé gert ráð fyrir að þetta verði til þess að fjölga enn frekar ferðamönnum á landsbyggðinni.

Í tilkynningunni er haft eftir Árna Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands, að félagið hafi verið að skoða þennan möguleika um nokkurt skeið og það sé alveg ljóst að þetta auðveldi ferðamönnum enn frekar að ferðast áfram innanlands. „Þá hefur hvatning Norðlendinga haft sitt að segja, enda mun þessi nýja flugleið stytta ferðatímann allverulega þegar farið er í utanlandsferðir.“

Flogið verður sex sinnum í viku milli Akureyrar og Keflavíkur yfir vetrartímann og þrisvar sinnum í viku yfir sumartímann.

„Á þessu stigi verður þetta flug eingöngu í boði fyrir farþega sem eru á leið í eða úr millilandaflugi í Keflavík og geta farþegar sem nýta sér þessa þjónustu ferðast alla leið frá Akureyri til endanlegs áfangastaðar í Evrópu eða Norður Ameríku. Fyrsta flug milli Keflavíkur og Akureyrar verður þann 24. febrúar 2017,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×