Enski boltinn

Upphitun: Frábær sunnudagur í vændum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Það er frábær sunnudagur í vændum í ensku úrvalsdeildinni en sýnt verður frá þremur leikjum, hver á eftir öðrum, á Stöð 2 Sport í dag.

Manchester United tekur á móti Stoke klukkan 11.00 en strax á eftir honum hefst upphitun fyrir viðureign Tottenham og Manchester City.

Þar mun Ríkharð Óskar Guðnason fara yfir allt það helsta fyrir leikinn ásamt Bjarna Guðjónssyni og Jóhanni Birni Guðmundssyni, leikmanni Keflavíkur og fyrrum atvinnumanni á Englandi.

Þeir gera upp leikinn að honum loknum og líta einnig á viðureign Burnley og Arsenal sem hefst klukkan 15.30.

Það verður því hvergi slegið slöku við og enski boltinn í samfelldri beinni útsendingu í sex og hálfa klukkustund á Stöð 2 Sport í dag.

Í spilaranum hér fyrir ofan má sjá upphitun fyrir leiki dagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×