Húsgögn keypt fyrir tugi milljóna króna Benedikt Bóas Hinriksson skrifar 1. október 2016 07:00 Þessir stólar reyndust vera falsaðir og þurfti að farga þeim.
Kostnaður vegna framkvæmda í Ráðhúsinu frá 2012 er tæpar 170 milljónir. Frá 2012 hefur verið unnið að því að breyta innréttingum í Ráðhúsinu til að mæta nýjum þörfum en engar framkvæmdir voru í húsinu frá 2004. Alls hefur Reykjavíkurborg eytt um 200 milljónum króna í framkvæmdir við Ráðhúsið frá 2001. Tæpar 40 milljónir hafa farið í húsasmíði, um 28,3 milljónir í húsgögn og 15,6 milljónir í verkfræðinga og tæknifræðinga. Aðrir einstakir kostnaðarliðir ná ekki tíu milljónum. Á þessu ári hefur borgin eytt 18 milljónum í húsasmíði og 12 milljónum í húsgögn. Þetta kom fram á borgarráðsfundi á fimmtudag. Þar kemur fram að húsið hafi upphaflega verið innréttað sem einkaskrifstofur og afgreiðslusvæði með um 60 starfsstöðvar. Aðeins var eitt fundarherbergi í skrifstofuhlutanum með mjög takmörkuðum aðgangi. Eftir breytingarnar eru nú 110 starfsstöðvar í skrifstofuhlutanum, auk 12 nýrra fundarherbergja fyrir 10-12 manns. Verði af áætluðum framkvæmdum hefur nýting skrifstofuhúsnæðisins tvöfaldast frá því sem upphaflega var. Frá því að framkvæmdir hófust árið 2012 er áætlað að starfsmönnum hafi fjölgað um 35-40. Dæmi um aukna nýtingu húsnæðis er að 24 starfsmenn menningar- og ferðamálasviðs fluttu í skrifstofuhúsnæðið á þessu ári, sem sparaði borginni um 24 milljónir í leigu á ári, og 16 starfsmenn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar eru nú í rými þar sem fyrir breytingar unnu sjö manns.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Halla féllst á beiðni Bjarna og rúmar sex vikur til kosninga Innlent Dagur bað kennara afsökunar titrandi röddu Innlent Rúmar þrjár milljónir króna á hvert gæludýr úkraínskra flóttamanna Innlent Taka ekki þátt í starfsstjórn Innlent „Ég er viss um að hann mundi allt sem gerðist þetta kvöld“ Innlent „Það má berja barn á Íslandi ef það er ekki með íslenska kennitölu“ Innlent Sjálfstæðismenn keppast um sætin: „Ég las Morgunblaðið eins og aðrir“ Innlent Vísað úr landi með föður sem hafi afsalað sér forsjá Innlent Kennarar gengu út og mótmæla orðum borgarstjóra Innlent Brutu leið inn á heimili fyrir sjúkralið að veita aðhlynningu Innlent Fleiri fréttir Bjarni leggur mesta áherslu á afgreiðslu fjárlagafrumvarps „Tími okkar með Sjálfstæðisflokknum er liðinn“ Þingkosningar í nóvember, viðbrögð VG og nýr íslenskur söngleikur „Hefur engan tilgang“ að setja nýtt fólk í starfsstjórn Taka ekki þátt í starfsstjórn Gefur ekki kost á sér í landsmálin að sinni Samningur Eflingar og SFV samþykktur Dagur bað kennara afsökunar titrandi röddu Átök Áslaugar og Guðlaugs Þórs ekki endurtekin Um 200 tilkynningar um tjón vegna rafmagnsleysis Kennarar gengu út og mótmæla orðum borgarstjóra Uppstilling hjá Miðflokknum Sjálfstæðismenn keppast um sætin: „Ég las Morgunblaðið eins og aðrir“ Alvarleg bilun í farsíma- og netþjónustu á Akureyri Fimm börn á leið til Kólumbíu sem séu öll í forsjá foreldra Sjálfstæðismenn í Kraganum raða á sunnudag Halldóra vill vera áfram á þingi Halla féllst á beiðni Bjarna og rúmar sex vikur til kosninga Reglan að forseti fari fram á starfsstjórn Vísað úr landi með föður sem hafi afsalað sér forsjá Stefnir á að sækjast eftir embætti rektors Mótmælendur unnu spellvirki á utanríkisráðuneytinu Lífeyrisþeginn hefði átt að láta reyna á skerðinguna fyrr Forseti Alþingis telur eðlilegt að Bjarni leiði starfsstjórn Óvissa um þingstörfin og enn stefnir í kennaraverkfall Segjast ekki hafa fengið formlega kröfugerð frá kennurum Skítamix til að gera það besta úr vonlausri stöðu Martha Lilja verður framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu Páll skipstjóri hvergi nærri hættur Skordýr í pastaskrúfum Sjá meira