Endurheimtu íslenska landsliðsfyrirliðann og unnu mikilvægan sigur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. október 2016 20:42 Aron Einar Gunnarsson. Vísir/Getty
Aron Einar Gunnarsson og félagar í Cardiff unnu 2-1 sigur á Bristol City í Íslendingaslag í ensku b-deildinni í fótbolta í kvöld. Þetta var mikilvægur sigur hjá Cardiff enda hefur gengið illa að undanförnu og þeir voru að mæta öflugu liði Bristol City sem sat í fimmta sæti deildarinnar fyrir leikinn eða 18 sætum ofar en Cardiff. Cardiff endurheimti íslenska landsliðsfyrirliðann inn á miðjuna og tókst að enda taphrinuna. Það munaði vissulega mikið um íslenska víkinginn. Aron Einar Gunnarsson spilaði allan leikinn með Cardiff City og Hörður Björgvin Magnússon var allan tímann í miðri vörn Bristol City. Neil Warnock vann því í sínum fyrsta leik sem knattspyrnustjóri Cardiff City en hann tók við liðinu af Paul Trollope í landsleikjahléinu. Aron Einar Gunnarsson kom aftur inn í liðið hjá Cardiff eftir meiðsli en hann hafði misst af síðustu þremur leikjum. Tveir þeir síðustu höfðu tapast sem kostaði Paul Trollope starfið. Peter Whittingham kom Cardiff í 1-0 með marki úr vítaspyrnu á 25. mínútu og Souleymane Bamba skoraði síðan annað mark á 67. mínútu. Aron Einar Gunnarson átti þátt í seinna markinu sem kom eftir hornspyrnu. Lee Tomlin minnkaði muninn í 2-1 aðeins þremur mínútum eftir seinna mark Cardiff. Aron Einar var mjög ósáttur við leikmenn Bristol City sem héldu áfram að spila þótt að einn leikmaður Cardiff lægi meiddur í grasinu. Aron Einar fékk á endanum gult spjald fyrir mótmæli. Það var síðan spenna í lokin en alls voru sjö mínútum bætt við. Bristol City reyndi að jafna leikinn en Cardiff liðið hélt út og landaði þremur stigum.
Enski boltinn Mest lesið Yfirlýsing Alberts: Ákveðinn léttir eftir erfitt ár Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Litháen 0-2 | Vonir íslenska liðsins orðnar að engu Fótbolti Miklar líkur á vandræðalegri stöðu fyrir Ísland Fótbolti Åge óviss varðandi Albert: „Gæti verið ómögulegt“ Fótbolti Finnur Freyr í veikindaleyfi Körfubolti Þak leikvangsins rifnaði í tætlur Sport Åge ræður hvort kallað verði í Albert Fótbolti Heimir um ummæli Dunne: „Ykkar starf að safna áskrifendum“ Fótbolti Svona var fundur KSÍ fyrir leikinn við Wales Fótbolti Ætlar ekki að hætta að sjúga í sig kosmíska krafta Fótbolti Fleiri fréttir Mazraoui fór í aðgerð vegna hjartavandamála Stjörnulögfræðingur á að bjarga Paqueta frá lífstíðarbanni Milan vill að Zlatan sæki landa sinn frá Manchester Fyrrum leikmaður ÍBV og Sheffield United fannst látinn Leikmaður Chelsea flutti aftur heim til mömmu og pabba Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool Grealish: Ég hefði átt að fara með á EM Félögunum refsað en Jackson sleppur Á skotskónum í framrúðubikarnum Lineker gefur lítið fyrir slúðursögur um framtíð sína Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Sjá meira