Innlent

Þörf á 5.100 íbúðum á höfuðborgarsvæðinu

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Um 5.100 íbúðir vantar til að mæta þörf fyrir íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Þar af vantar 3.000 – 3.300 í Reykjavík. Þetta kemur fram í nýrri fasteignagreiningu Capacent.
Um 5.100 íbúðir vantar til að mæta þörf fyrir íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Þar af vantar 3.000 – 3.300 í Reykjavík. Þetta kemur fram í nýrri fasteignagreiningu Capacent. Vísir/Anton
Um 5.100 íbúðir vantar til að mæta þörf fyrir íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Þar af vantar 3.000 – 3.300 í Reykjavík. Þetta kemur fram í nýrri fasteignagreiningu Capacent. Capacent vann greiningu á stöðu og horfum á fasteignamarkaði fyrir Reykjavíkurborg og var niðurstaðan kynnt á opnum fundi í Ráðhúsi Reykjavíkur í morgun.

Þar kom fram að framboð á húsnæði og íbúðafjárfesting er talsvert undir meðaltali áranna 1997-2003. Samtals virðist vanta um 5.100 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu til að uppfylla þörf fyrir íbúðir og að jafnaði vantar um 1.700 til 1.800 nýjar íbúðir á höfuðborgarsvæðið á ári. Uppsafnaðri þörf fyrir leiguíbúðir fyrir yngri, tekjuminni einstaklinga hefur ekki mætt og um 2.500 til 3.000 íbúðir skortir til að uppfylla þörf næstu þriggja ára.

Þá segir einnig að aðstæður til að auka framboð íbúða hafi batnað mikið frá hruni. Kaupverð fasteigna hafi hækkað umfram byggingarkostnað og að byggingarkostnaður fjölbýlishúsa sé nú lægri en kaupverð þeirra. Byggingarkostnaður sérbýla sé þó enn hærri en kaupverð þeirra.

Búast má við því að framboð húsnæðis muni fara vaxandi á næstu misserum og má rekja það til þess að fasteignaverð hefur farið ört hækkandi, innflutningsverð aðfanga lækkað með styrkingu krónunnar og arðsemi bygginga því aukist. Töluverð aukning er á beiðnum um leyfi til byggingu nýrra íbúða, og um 1.200 byggingarleyfi voru veitt á síðasta ári.

Jafnmörg mánaðarlaun og árið 2004

Þrátt fyrir að fasteignaverð hafi hækkað mikið að undanförnu kostar um það bil jafn mörg mánaðarlaun að kaupa íbúð í Reykjavík í dag og það kostaði árið 2004. Að jafnaði tekur það 48 meðalmánaðarlaun einstaklings að greiða fyrir 90 fermetra íbúð í Reykjavík.

Þá hefur leiguverð hækkað langt umfram fasteignaverð undanfarin 3 ár, en spenna á fasteignamarkaði kemur oft fyrst fram á leigumarkaði. Um 18 prósent Reykvíkinga eru á leigumarkaði og eru það helst yngri og tekjulægri einstaklingar sem eru á leigumarkaði. Húsnæðiskostnaður er þó almennt hærri fyrir leigjendur en eigendur. Þau sem eru líkleg til að leigja gera ráð fyrir að greiða um 140 – 160 þúsund krónur á mánuði í leigu.

Þrátt fyrir aukin umsvif á leigumarkaði síðan árið 2006 eru fáir á leigumarkaði á Íslandi miðað við önnur Evrópulönd. Um 21,8% íslendinga voru á leigumarkaði árið 2014 í samanburði við 35,7% Dana, 30,1% Svía og 33,1% að meðaltali í 19 stofnríkum Evrópusambandsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×