Þörf á 5.100 íbúðum á höfuðborgarsvæðinu Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 14. október 2016 15:05 Um 5.100 íbúðir vantar til að mæta þörf fyrir íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Þar af vantar 3.000 – 3.300 í Reykjavík. Þetta kemur fram í nýrri fasteignagreiningu Capacent. Vísir/Anton
Um 5.100 íbúðir vantar til að mæta þörf fyrir íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Þar af vantar 3.000 – 3.300 í Reykjavík. Þetta kemur fram í nýrri fasteignagreiningu Capacent. Capacent vann greiningu á stöðu og horfum á fasteignamarkaði fyrir Reykjavíkurborg og var niðurstaðan kynnt á opnum fundi í Ráðhúsi Reykjavíkur í morgun. Þar kom fram að framboð á húsnæði og íbúðafjárfesting er talsvert undir meðaltali áranna 1997-2003. Samtals virðist vanta um 5.100 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu til að uppfylla þörf fyrir íbúðir og að jafnaði vantar um 1.700 til 1.800 nýjar íbúðir á höfuðborgarsvæðið á ári. Uppsafnaðri þörf fyrir leiguíbúðir fyrir yngri, tekjuminni einstaklinga hefur ekki mætt og um 2.500 til 3.000 íbúðir skortir til að uppfylla þörf næstu þriggja ára. Þá segir einnig að aðstæður til að auka framboð íbúða hafi batnað mikið frá hruni. Kaupverð fasteigna hafi hækkað umfram byggingarkostnað og að byggingarkostnaður fjölbýlishúsa sé nú lægri en kaupverð þeirra. Byggingarkostnaður sérbýla sé þó enn hærri en kaupverð þeirra. Búast má við því að framboð húsnæðis muni fara vaxandi á næstu misserum og má rekja það til þess að fasteignaverð hefur farið ört hækkandi, innflutningsverð aðfanga lækkað með styrkingu krónunnar og arðsemi bygginga því aukist. Töluverð aukning er á beiðnum um leyfi til byggingu nýrra íbúða, og um 1.200 byggingarleyfi voru veitt á síðasta ári. Jafnmörg mánaðarlaun og árið 2004 Þrátt fyrir að fasteignaverð hafi hækkað mikið að undanförnu kostar um það bil jafn mörg mánaðarlaun að kaupa íbúð í Reykjavík í dag og það kostaði árið 2004. Að jafnaði tekur það 48 meðalmánaðarlaun einstaklings að greiða fyrir 90 fermetra íbúð í Reykjavík. Þá hefur leiguverð hækkað langt umfram fasteignaverð undanfarin 3 ár, en spenna á fasteignamarkaði kemur oft fyrst fram á leigumarkaði. Um 18 prósent Reykvíkinga eru á leigumarkaði og eru það helst yngri og tekjulægri einstaklingar sem eru á leigumarkaði. Húsnæðiskostnaður er þó almennt hærri fyrir leigjendur en eigendur. Þau sem eru líkleg til að leigja gera ráð fyrir að greiða um 140 – 160 þúsund krónur á mánuði í leigu. Þrátt fyrir aukin umsvif á leigumarkaði síðan árið 2006 eru fáir á leigumarkaði á Íslandi miðað við önnur Evrópulönd. Um 21,8% íslendinga voru á leigumarkaði árið 2014 í samanburði við 35,7% Dana, 30,1% Svía og 33,1% að meðaltali í 19 stofnríkum Evrópusambandsins.
Mest lesið Svona voru fundahöld forseta með formönnum flokka Innlent Ríkisstjórnin sprungin Innlent Dagbjört eyddi færslu eftir hörð viðbrögð Innlent „Þriðja banatilræðinu“ gegn Trump afstýrt Erlent Kraumar í kennurum vegna ummæla Einars Innlent Segja ásakanir „uppspuna frá rótum“ og „efni í hryllingsmynd“ Innlent „Þetta verður alger Kleppur“ Innlent Jón Gnarr kennir í brjósti um Einar arftaka sinn Innlent Íslendingur bannaður á djamminu í Danmörku Innlent „Þetta er eitthvað sem fylgir manni út ævina“ Innlent Fleiri fréttir Arndís Anna hyggst ekki bjóða sig fram aftur Meintur nethrellir fær bætur vegna húsleitar „Loksins!“ segja ungir sjálfstæðismenn Starfsstjórn með nýjum forsætisráðherra „bara einhver furðukenning“ Ekki einhugur meðal formanna flokkanna um framhaldið Þykir leitt hvernig kennarar túlkuðu orð sín Sér Sigurð Inga alveg fyrir sér sem forsætisráðherra Dagbjört stendur við færsluna sem hún eyddi Viðbrögð stjórnarandstöðunnar, rödd almennings og landsleikur Afar spenntur fyrir minnihlutastjórn Íslendingur bannaður á djamminu í Danmörku „Ekkert eðlilega leiðinleg, þessi ríkisstjórn“ Allar líkur á samþykki forseta og að stjórnin sitji til kosninga Blönduð leið líkleg hjá Viðreisn og barátta um oddvitasætin „Við erum ekkert ofboðslega hrifin af þessari dramatík“ Staðan óljós eftir atburðarás gærdagsins Jón Gnarr kennir í brjósti um Einar arftaka sinn Hnífstunguárás í gistiskýlinu „Við þurfum að flýta okkur hægt í þessari stöðu“ Það henti VG að vera í „svolitlum slag“ við Sjálfstæðisflokkinn Skondið að sjá ágreininginn koma upp á yfirborðið Stuttur tími til að „komast í kjólinn fyrir jólin“ Pallborðið: Hvað segir stjórnarandstaðan um útspil Bjarna? Óvissa í efnahagslífinu og erfitt að sjá að verðbólga hjaðni nú Annar fyrrverandi Miðflokksmaður til liðs við Arnar Þór Forseti fundar með formönnum Uppstilling á framboðslista „ekki A-kostur“ „Svívirðileg móðgun við kennara“ „Mér gæti ekki verið meira sama um alla spekingana“ Frank Walter Sands er fallinn frá Sjá meira