Enski boltinn

Hazard vill spila sem tía hjá Chelsea

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Eden Hazard.
Eden Hazard. vísir/getty
Þó svo Eden Hazard spili í treyju númer 10 hjá Chelsea þá fær hann ekki að spila sem tía hjá liðinu.

Hjá belgíska landsliðinu spilar Hazard sem tía eða í holunni fyrir aftan framherjann. Hjá Chelsea er hann aftur á móti á vinstri vængnum. Hann skoraði í báðum landsleikjum Belga í landsleikjavikunni í sinni uppáhaldsstöðu.

„Ég vil spila sem tía. Þá hef ég meira frjálsræði í sókninni. Hjá belgíska landsliðinu erum við með kantmenn sem hlaupa mikið og búa þar með til mikið pláss. Það er gott og leikkerfið hentar mér vel,“ sagði Hazard en hann efast um að Antonio Conte, stjóri Chelsea, ætli að henda sér í holuna hjá Chelsea.

„Ég veit ekki hvort það gerist. Þið verðið að spyrja stjórann. Ég spila vinstra megin og reyni að standa mig eins vel og ég get þar. Auðvitað vil ég spila sem tía. Hjá Chelsea spilum við líka stundum kerfi þar sem að er enginn tíustaða.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×