Skoðun

Þú munt líklega ekki má markmiðinu þínu

Martha Árnadóttir skrifar
Það er allt klárt, þú ert í góðu stuði með nýja markmiðið þitt og skothelda áætlun um það sem fram undan er. Þér líður vel og það hríslast um þig unaðsstraumur þegar þú hugsar til þeirrar stundar þegar markmiðinu er náð.

En – einmitt þá fer hún að gera vart við sig, röddin andstyggilega, sem mörg okkar þekkja svo vel. Hún hefur ekki hátt til byrja með en fljótlega verður hún háværari og fer að argast í okkur, draga úr okkur, segja okkur að við þurfum ekki að gera þetta í dag, séum bara ekki nógu vel upplögð í dag, eitthvað svo dimmt í dag, nógur tími – verður betra á morgun?…

Það er eitthvað óskiljanlegt við þessa seiðandi rödd og þegar við reynum að skilja hana þá koma bara upp í hugann orð eins geðveiki og sjálfstortíming – í besta falli leti.

Hvað er í gangi?

Þú vilt virkilega ná markmiðinu sem þú settir, það flæddi um þig eldmóður og tilhlökkun að takast á við verkefnið þegar þú sast og skrifaðir þetta allt niður – en þessi rödd talar þig ofan af hverri aðgerðinni á fætur annarri og telur þér trú um að þú munir gera þetta á morgun, á morgun, á morgun. Í framhaldinu ferðu að efast um markmiðið, er þetta virkilega það sem ég vil og að lokum verður niðurstaðan sú að þetta hafi verið vitlaust markmið!

Ýmsir sálfræðingar halda því fram að frestun sé bara hluti af mannlegu eðli, að leita stöðugt að þægilegri og fyrirhafnarminni lífsháttum og sennilega er mikið til í því – en það þarf ekki að vera þannig. Ef við eigum okkur drauma og markmið þá viljum við ekki að þægindaramminn okkar sé svo þröngur að hann kæfi þau í fæðingu.

Ég hef velt þessu mikið fyrir mér og þegar ég lít til baka held ég að ég hafi verið illa haldin af frestunaráráttu fram undir fertugt. Á þessum tíma var röddin allsráðandi í mínu lífi og það var ekki eins og ég vissi ekki af henni – ég velti henni stöðugt fyrir mér og upplifði hana sem hluta af mér eins og fætur og nef, ég var bara svona óheppin að fá þessa blessuðu rödd í vöggugjöf, hugsaði ég og horfði á alla hina sem þustu áfram á fljúgandi ferð og þurftu ekki að kljást við röddina.

Mín sannfæring

Eftir að hafa tekist að einhverju leyti að ráða niðurlögum þessarar andstyggilegu raddar þá er fátt sem ég er meira sannfærð um en að eftirtalin fjögur atriði ráða mestu um árangur okkar í viðureigninni við röddina: Hugarró, þjálfun, hvíld og rútína – og finni nú hver sitt?…




Skoðun

Sjá meira


×