Enski boltinn

City aftur á sigurbraut með stórsigri | Sjáðu mörkin

Manchester City átti ekki í miklum vandræðum með West Bromwich Albion á útivelli í dag, en City vann 4-0 sigur.

Sergio Aguero kom City yfir á 19. mínútu og níu mínútum síðar tvöfaldaði Aguero forystuna með sínu öðru marki.

Þannig stóðu leikar í hálfleik, en þriðja markið kom á 79. mínútu þeagr İlkay Gündoğan kom City í 3-0. Gündoğan skoraði svo fjórða markið í uppbótartíma.

City er á toppnum með 23 stig, en WBA er í fimmtánda sætinu með 10 stig. City hafði ekki unnið í síðustu leikjum í öllum keppnum, en er nú komið á sigurbraut á ný.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×