Allt í volli hjá Rotherham United síðan að Kári Árna fór Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. október 2016 15:30 Kári Árnason var frábær með íslenska landsliðinu á EM í Frakklandi. Vísir/Getty
Íslenskt knattspyrnuáhugafólk þekkir vel mikilvægi Kára Árnasonar og fólkið í Rotherham hlýtur að sakna íslenska landsliðsmiðvarins mikið þessi misserin. Rotherham United er enn á ný komið með nýjan knattspyrnustjóra en enska félagið hefur verið í miklum vandræðum með stjóra síðan að íslenski landsliðsmaðurinn Kári Árnason yfirgaf félagið. Kári Árnason kom til Rotherham United árið 2012 og fór í framhaldinu upp um tvær deildir með liðinu. Knattspyrnustjórinn þann tíma var hinn litríki Steve Evans. Kári hefur talað um það í viðtölum að það var oft ekki mikið vit í því sem Steve Evans var að gera og Kári viðurkenndi það að hafa stundum hjálpað stjóranum með leikskipulag og annað. Kári yfirgaf Rotherham United sumarið 2015 eftir þrjú tímabil. Hann samdi við sænska liðið Malmö FF þar sem hann spilar enn. Eftir að Kári fór frá Rotherham United hefur allt gengið á afturfótunum og félagið hefur farið í gegnum hvern knattspyrnustjóranna á fætur öðrum. Það eru bara liðnir 18 mánuðir síðan að Kári fór frá Rotherham United en félagið er nú á sínum fimmta knattspyrnustjóra á þessu tímabili. Steve Evans entist bara í tvo mánuði eftir að hann missti Kára Árnason en síðan hefur félagið rekið þrjá stjóra til viðbótar eða þá Neil Redfearn (október 2015 - Febrúar 2016), Neil Warnock (Febrúar 2016 - Maí 2016) og Alan Stubbs (Júní 2016 - Október 2016). Alan Stubbs var síðastur til að missa starfið sitt en Rotherham United hefur nú fundið eftirmann hans í Kenny Jackett. Jackett fær það verkefni að bjarga liðinu frá falli en Rotherham United er í neðsta sæti b-deildarinnar með 6 stig og 1 sigur í 13 leikjum.
Enski boltinn Mest lesið Miklar líkur á vandræðalegri stöðu fyrir Ísland Fótbolti Þak leikvangsins rifnaði í tætlur Sport Åge ræður hvort kallað verði í Albert Fótbolti Heimir um ummæli Dunne: „Ykkar starf að safna áskrifendum“ Fótbolti Åge óviss varðandi Albert: „Gæti verið ómögulegt“ Fótbolti Svona var fundur KSÍ fyrir leikinn við Wales Fótbolti Milan vill að Zlatan sæki landa sinn frá Manchester Enski boltinn Ætlar ekki að hætta að sjúga í sig kosmíska krafta Fótbolti Segja Klopp afhjúpa hræsni sína með ráðningunni Fótbolti Stjörnulögfræðingur á að bjarga Paqueta frá lífstíðarbanni Enski boltinn Fleiri fréttir Stjörnulögfræðingur á að bjarga Paqueta frá lífstíðarbanni Milan vill að Zlatan sæki landa sinn frá Manchester Fyrrum leikmaður ÍBV og Sheffield United fannst látinn Leikmaður Chelsea flutti aftur heim til mömmu og pabba Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool Grealish: Ég hefði átt að fara með á EM Félögunum refsað en Jackson sleppur Á skotskónum í framrúðubikarnum Lineker gefur lítið fyrir slúðursögur um framtíð sína Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Sjá meira