Fótbolti

Níundi þjálfarinn síðan Mourinho fór

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Pioli á bekknum hjá Lazio.
Pioli á bekknum hjá Lazio. vísir/getty
Hinir moldríku eigendur ítalska félagsins Inter eru búnir að finna arftaka Frank de Boer í þjálfarastóli félagsins.

Þeir hafa ráðið hinn 51 árs gamla Ítala, Stefano Pioli. Sá var síðast við stjórnvölinn hjá Lazio. Hann var rekinn frá félaginu í apríl.

Pioli skrifaði undir samning við Inter fram á sumar árið 2018.

Hann er níundi þjálfarinn sem Inter ræður síðan Jose Mourinho fór frá félaginu eftir að hafa unnið Meistaradeildina árið 2010.

Inter situr í níunda sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar heilum 13 stigum á eftir toppliði Juventus. Liðið er þess utan í neðsta sæti í sínum riðli í Evrópudeild UEFA.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×