„Íslandsvinur“ nálgaðist barnastjörnur á Harry Potter sýningu dulbúinn sem lögga Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. nóvember 2016 10:30 "Eftir á óskaði ég þess að ég hefði ekki gert þetta. Ég vil hætta þessu. Ég hef fengið nóg af lögreglustöðvum og fangelsum, ég ræð ekki við það lengur,“ sagði Reese Scobie í viðtali í febrúar. Hann var ekki lengi að brjóta af sér á nýjan leik. Vísir/Getty
Skotinn Reese Scobie, sem hlaut árs fangelsisdóm í febrúar hér á landi fyrir ítrekuð fjársvikabrot og vörslu á barnaklámivar handtekinn enn á ný á dögunum. Scobie, sem hefur verið nefndur „Catch me if you can“ - glæpamaðurinn, dulbjó sig sem lögreglumann og komst baksviðs í Palace Theatre í Soho í London. Þar ræddi hann við tvo barnunga leikara, fékk nöfn þeirra, netföng og símanúmer. Leikritið sem um ræðir er Harry Potter and the Cursed Child sem nýtur mikilla vinsælda og er uppselt á svo til allar sýningar. Scobie var klæddur í lögreglubúning og var auk þess með handjárn til að auka trúverðugleika búningsins. Hann sagðist þurfa að ná tali af fyrrnefndum börnum sem leika hlutverk í verkinu. Saksóknari í málinu, Darren Watts, sagði það áhyggjuefni að Scobie hefði dulbúið sig til að nálgast stjörnur sem í þessu tilfelli væru börn. Brotaviljinn væri einlægur en Scobie væri dæmdur kynferðisbrotamaður gagnvart börnum. Þegar hann komst að börnunum gekk hann á þau og óskaði eftir persónulegum upplýsingum s.s. heimilisfangi, símanúmeri og netfangi. Scobie hafði bókað tveggja vikna gistingu á hóteli í nágrenninu var handtekinn skömmu síðar eftir að fólki þótti hegðun hans grunsamleg. Hann hefur verið dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir brot sín en hann braut einnig reglur er sneru að tilkynningaskyldu hans sem dæmdur kynferðisbrotamaður.Hér sést Scobie í öryggismyndavél verslunarinnar iSímans þar sem hann reyndi að sækja vörur fyrir rúma hálfa milljón.Sagðist vilja hætta afbrotum Scobie sagðist í viðtali við skoska blaðið The Evening Telegraph í febrúar ákveðinn í því að snúa blaðinu við. Scobie vakti á sínum tíma mikla athygli fyrir efnahagsbrot í heimalandinu, þangað sem hann var kominn til að afplána eftirstöðvar dómsins sem hann hlaut á Íslandi. Scobie var handtekinn við komu til landsins þann 16. júní í fyrra með umtalsvert magn barnakláms á tölvubúnaði sem hann hafði meðferðis. Farmiði hans til Íslands var greiddur með illa fengnu greiðslukortanúmeri en fjársvik af ferðaþjónustuaðilum eru þau brot sem Scobie er helst þekktur fyrir. Hann var látinn laus úr gæsluvarðhaldi þann 27. júlí en áfram látinn sæta farbanni á meðan rannsókn þessara brota stóð yfir. Scobie varð uppvís að fjölda fjársvika með fölsuðum greiðslukortum á meðan hann gekk laus á Íslandi. Meðal annars var hann handtekinn í verslun iSímans í Skipholti í Reykjavík þann 6. ágúst þar sem hann reyndi að sækja vörur fyrir alls 516 þúsund krónur. „Ég leiddi aldrei hugann að afleiðingunum, að fólk myndi tapa peningum,“ segir Scobie í samtali við The Evening Telegraph um eðli brota sinna. „Eftir á óskaði ég þess að ég hefði ekki gert þetta. Ég vil hætta þessu. Ég hef fengið nóg af lögreglustöðvum og fangelsum, ég ræð ekki við það lengur.“Afbrot Scobie árið 2013 vöktu athygli í breskum fjölmiðlum.„Ekkert eins og í Catch Me If You Can“ Scobie er fæddur árið 1993 og vakti sem fyrr segir athygli fjölmiðla fyrir efnahagsbrot í Bretlandi. Hann fékk árið 2013 sextán mánaða dóm í Bretlandi fyrir að svíkja út sjötíu þúsund pund, eða rúmlega fjórtán milljónir íslenskra króna, af ferðaþjónustuaðilum. Í fréttum breskra miðla um málið segir að í dómi sé Scobie lýst sem tæknisérfræðingi sem nýti sér tölvukunnáttu sína til að svíkja út fé. Þá er talað um Scobie sem „Catch me if you can-glæpamanninn“ í breskum miðlum og honum líkt við þekkta svikahrappinn Frank Abagnale Jr., sem Leonardo DiCaprio lék í bíómyndinni Catch Me If You Can. „Ég hef mjög gaman af flugvélum og því að ferðast, en þetta var ekkert eins og í Catch Me If You Can,“ segir Scobie. Frá handtöku Scobie í verslun iSímans í ágúst í fyrra.Mynd/Tómas KristjánssonSegist ekki vera barnaníðingur „Þetta snerist bara um spennuna við það að vera í fluginu. Ég var nokkurn veginn bara í því að fara beint úr einu flugi í annað. Að bóka flugferðirnar var bara eitthvað sem ég gerði og mundi svo ekki eftir.“ Scobie, sem er ofvirkur og með Asberger-heilkenni, játaði öll brot sín skýlaust fyrir dómi á Íslandi. Hann segist í viðtalinu hafa komist yfir þær þúsundir ljósmynda og hundruð myndskeiða sem sýna börn á klámfenginn hátt þegar hann var að forvitnast um „myrku hliðar internetsins.“ „Ég er alls ekki barnaníðingur,“ segir Scobie. „Ég ákvað að kíkja hvað væri á spjallþræði sem ég fann á netinu og þegar ég áttaði mig á því hvað var á myndunum reyndi ég að eyða þeim. Ég tilkynnti efnið til eftirlitsstofnana. Ég hélt að ég hefði eytt þeim en lögreglan fann leifar af þeim.“
Tengdar fréttir Tjáir sig um brotin á Íslandi: „Ég er ekki barnaníðingur“ Alþjóðlegi svikahrappurinn Reece Scobie segir ótrúlega sögu sína í samtali við skoska miðla. 24. febrúar 2016 11:04 Alþjóðlegur svikari hlaut ársfangelsi á Íslandi Hinn ungi tölvuþrjótur Reece Scobie braut ítrekað af sér hér á landi á meðan hann sætti farbanni. 16. febrúar 2016 19:45 Mest lesið Umdeild sameining sánuklefa: „Mér finnst allir vera óánægðir með þetta“ Innlent Fimmti hver ökumaður með óeðlileg afskipti við slysstað Innlent Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Erlent Rannsókn lokið á veikindum á hálendi í sumar Innlent Flugfreyjan frestaði íbúðakaupum og fórnaði sparnaðinum í flugnám Innlent Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Erlent Kristjana frá Rúv til Ásmundar Einars Innlent Ekkert skriflegt áhættumat og spurt hvort vinnan hafi verið áhættunnar virði Innlent Bein útsending: Kynna niðurstöður um flugvöll og samgöngur Innlent Ólafur Ragnar um Davíð Oddsson: „Hugsar og hegðar sér eins og fasisti“ Innlent Fleiri fréttir Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Sjá meira
Tjáir sig um brotin á Íslandi: „Ég er ekki barnaníðingur“ Alþjóðlegi svikahrappurinn Reece Scobie segir ótrúlega sögu sína í samtali við skoska miðla. 24. febrúar 2016 11:04
Alþjóðlegur svikari hlaut ársfangelsi á Íslandi Hinn ungi tölvuþrjótur Reece Scobie braut ítrekað af sér hér á landi á meðan hann sætti farbanni. 16. febrúar 2016 19:45