Enski boltinn

Fyrsta tap Leicester á heimavelli kom gegn West Brom | Sjáðu mörkin

West Brom vann fyrsta leik sinn í tæpa tvo mánuði í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu 2-1 á heimavelli meistaranna í Leicester City en þetta var fyrsta tap Leicester á heimavelli í vetur.

James Morrison kom West Brom yfir með skalla af stuttu færi á 52. mínútu en Islam Slimani svaraði um hæl fyrir Leicester eftir undirbúning Ryiad Mahrez.

Matt Phillips skoraði sigurmark West Brom korteri fyrir leikslok er hann slapp inn fyrir vörn heimamanna og lyfti boltanum yfir Robert Zieler í marki Leicester.

Leicester sótti af ákafa á lokamínútum leiksins en náðu ekki að bjarga stigi á heimavelli. Var þetta fyrsta tap Leicester á heimavelli í vetur en liðið var búið að fá tíu stig af tólf mögulegum fyrir leik dagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×