Fótbolti

Birkir skoraði þegar Basel slátraði Vaduz

Birkir fagnar marki í búningi Basel.
Birkir fagnar marki í búningi Basel. vísir/getty
Birkir Bjarnason skoraði eitt mark fyrir Basel sem vann Vaduz í svissnesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Basel fór létt með gestina og fór leikurinn 6-0.

Seydou Doumbia skoraði tvö mörk fyrir Basel í kvöld en þeir Mohamed Elyounoussi, Birkir Bjarnason, Michael Lang og Davide Calla gerðu allir sitt markið hver fyrir Basel sem fór létt með andstæðing sinn.

Basel er í langefsta sæti deildarinnar með 41 stig, fimmtán stigum á undan næsta liði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×