Skoðun

Skemmtum okkur saman en ekki hvert á kostnað annars

Orri Hauksson skrifar
Ótti við aukna samkeppni einkennir skrif Erlings Freys Guðmundssonar, framkvæmdastjóra Gagnaveitu Reykjavíkur (GR), í grein sem birtist í Fréttablaðinu í gær, 16. nóvember. Erling gerir tilkall til sjónvarpsefnis Símans með valdboði en ekki viðskiptum.

GR er í eigu skattgreiðenda á höfuðborgarsvæðinu í gegnum eignarhald Orkuveitu Reykjavíkur, sem er einkaleyfisvarin opinber stofnun samkvæmt lögum. GR hefur undanfarin ár varið á þriðja tug milljarða til fjárfestinga í samkeppni við einkafjármagn í landinu. Orkugjöld hafa snarhækkað, en hluta þeirrar hækkunar hefur verið varið til framangreindrar niðurgreiðslu á óskyldum samkeppnisrekstri.

Ísland í fremstu röð í heiminum

Síminn hóf að leggja ljósleiðara fyrir rúmum þrjátíu árum. Míla, dótturfélag Símans, á lagnakerfi undir öllu höfuðborgarsvæðinu. Á næstu tveimur árum lýkur fyrirtækið við að tengja ljósleiðara inn í nær öll hús á þessu svæði. Framkvæmdin sem kostar brot af því fé, sem íbúar svæðisins hafa óspurðir verið látnir verja í framkvæmdir hins opinbera félags GR, gegnum hækkuð orkugjöld, hámarksútsvar og endurtekið umhverfisrask.

Ísland er í þriðja sæti í heiminum í svokölluðum ICT Development Index, alþjóðlegri vísitölu Sameinuðu þjóðanna, sem mælir m.a. tölvunotkun, gæði fjarskiptakerfa og aðgang almennings að nettengdri tækni. Síminn á ríkan þátt í þeirri góðu stöðu landsins. Fjarskiptagjöld til neytenda eru lág í alþjóðlegum samanburði. Því er fráleitur atvinnurógur framkvæmdastjóra GR að Síminn hafi staðið fyrir tæknilegri stöðnun á Íslandi.

Einokunarfyrirtæki takmarkar aðgang

GR gengst við því að bjóða eingöngu eina aðgangsleið að fjarskiptakerfum sínum, óháð þörfum þjónustuveitenda eða neytenda. Þessi aðferð er mun umfangsmeiri og dýrari en Símasamstæðan hefur þörf fyrir í þjónustu sinni við viðskiptavini, enda innviðir Símasamstæðunnar ríkir fyrir.

Fleiri opinberir aðilar en GR haft lagt fjarskiptainnviði hér og hvar um landið. Símasamstæðan leigir aðgang að slíkum innviðum á nokkrum stöðum á landinu, til að nýta sem best fjárfestingarfé sitt og veita ódýra þjónustu. GR hefur hafnað endurteknum óskum Símasamstæðunnar um að fá keyptan sams konar aðgang að kerfum hennar, og önnur opinber ljósleiðarakerfi úti á landi og víða um Evrópu veita.

Þessi eina njörvaða aðgangsleið GR er án viðskiptalegra forsendna. Hún er til þess fallin að eyða samkeppni út úr fjárfestingum í innviðum og búnaði. Takist það situr Gagnaveita Reykjavíkur ein að innviðum og í einokunarstöðu. GR segist ekki í beinni samkeppni um viðskiptavini sína, en sleppir að nefna að GR stundar bæði heildsölu og smásölu og á í hagsmunaárekstri við heildsölukúnna sína.

Viðskipti í stað valdhroka

Síminn rekur sjónvarpsstöðina Sjónvarp Símans sem er opin til dreifingar á öllum kerfum. Síminn ver miklu fé til að framleiða fjölskylduskemmtiefni á borð við einn vinsælasta sjónvarpsþátt landsins, The Voice Ísland, og sýnir í opinni dagskrá á öllum kerfum.

Síminn fjárfestir líka til að bjóða þeim sem vilja hafa aðgang að sjónvarpsefni hvenær sem er, aukna þjónustu. Opinber stofnun á ekki að reyna að taka höfundarréttarvarið efni til sín með valdi sem afþreyingarmiðlar á Íslandi greiða fyrir að bjóða á markaði.

Hvernig væri að hið opinbera opnaði kerfið, sem við skattgreiðendur eigum saman, og stundaði heilbrigð viðskipti og málefnalega umræðu? Skemmtum okkur saman en ekki hvert á kostnað annars.



Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Skoðun

Yfir­lýsing kennara eftir fund með borgar­stjóra

Andrea Sigurjónsdóttir,Eygló Friðriksdóttir,Guðrún Gunnarsdóttir,Jónína Einarsdóttir,Kristín Björnsdóttir,Lilja Margrét Möller,Linda Ósk Sigurðardóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar

Skoðun

Vá!

Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar

Sjá meira


×