Skoðun

Konum blæðir

Inga Dóra Pétursdóttir skrifar
Undir stjórn ISIS mátti aðeins sjást í augun á okkur. Einn daginn þvoði ég þvott uppi á þaki með óhulið andlitið. Vígamaður íslamska ríkisins kom auga á mig. Þeir óðu inn á heimilið og skipuðu okkur að koma út. Þeir hirtu skilríki eiginmanns míns. Mér var skipað að stíga ofan á höfuð eiginmanns míns meðan hann var hýddur. Svo var honum skipað að greiða 50 dollara sekt.

Vinkonur mínar hafa verið herteknar og gert að verða eiginkonur vígamannanna og enn fleirum hefur verið nauðgað. Mig dreymir um að geta snúið aftur til Mosúl og lifa þar í friði,“ segir 19 ára gömul stúlka í flóttamannabúðum í Írak.

Borgin Mosúl í Írak hefur verið höfuðvígi vígamanna ISIS undanfarin tvö ár. Í október var talið að vígamennirnir héldu að minnta kosti 3.500 kynlífsþrælum. Sameinuðu þjóðirnar telja að í Mosúl hafi verið framinn glæpur gegn mannkyninu en ekki aðeins hafi konur verið beittar gegndarlausu ofbeldi heldur hefur öllum íbúum verið haldið í heljargreipum. Konum í Mosúl hefur verið haldið í algjörri einangrun. Síma- og netnotkun varðar við dauðasök, ferðafrelsi kvenna er ekkert og raddir kvenna stranglega bannaðar opinberlega.

Nú freista öryggissveitir Íraka að frelsa borgina undan ISIS og þar geysa hörð átök. Um 62 þúsund manns hafa flúið borgina síðastliðinn mánuð í leit að öryggi og frelsi. Hætta er á að ástandið í Mosúl muni ekki batna á næstunni og hræðast margir að íbúa bíði sömu örlög og íbúa Aleppo.

UN Women er á svæðinu, í Mosúl og kring og dreifir sæmdarsettum til kvenna á flótta úr borginni. Sæmdarsettin innihalda nauðsynjavörur sem auka öryggi kvenna og gera þeim kleift að halda reisn og sæmd sinni þrátt fyrir skelfilegar aðstæður. Konum blæðir en þú getur hjálpað. Með því að senda sms-ið KONUR í 1900 (1.490 kr) veitir þú konu sæmdarsett sem inniheldur vasaljós, sápu og dömubindi.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Skoðun

Skoðun

Yfir­lýsing kennara eftir fund með borgar­stjóra

Andrea Sigurjónsdóttir,Eygló Friðriksdóttir,Guðrún Gunnarsdóttir,Jónína Einarsdóttir,Kristín Björnsdóttir,Lilja Margrét Möller,Linda Ósk Sigurðardóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar

Skoðun

Vá!

Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar

Sjá meira


×