Skoðun

Hlaðið undir einkarekstur

Gunnar Ólafsson skrifar
Um daginn birtist frétt um að heilsugæslan í Mosfellsbæ myndi hætta kvöld- og helgarþjónustu fyrir íbúa á þjónustusvæði þess og þjónustunni muni framvegis vera sinnt af Læknavaktinni í Kópavogi. Heilsugæslan í Mosfellsbæ er rekin af Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) sem er opinber stofnun. Læknavaktin (LV) er einkarekið fyrirtæki sem sinnir heilsugæsluþjónustu samkvæmt þjónustusamningi við velferðarráðuneytið um kvöld- og helgarþjónustu á höfuðborgarsvæðinu.

Áhrif þessarar boðuðu breytingar eru þau að íbúar á þjónustusvæði heilsugæslunnar í Mosfellsbæ þurfa að fara miklu lengri leið til að fá kvöld- og helgarþjónustu heilsugæslu og er því í raun um skerðingu að ræða á þjónustu. Annað og verra er að með þessari breytingu er verið að draga úr opinberri heilbrigðisþjónustu til að hlaða undir einkarekstur.

Það er með öllu óskiljanlegt að kvöld- og helgarþjónustu heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu sé sérstaklega útvistað til einkafyrirtækis sem þar að auki er illa staðsett hvað almenningssamgöngur snertir. Læknavaktin fær um 376 milljónir á ári úr ríkissjóði. Nær allir læknar sem vinna á LV eru einnig starfsmenn HH og sinna sínum störfum hjá LV sem verktakar. Það er furðuleg ákvörðun að slíta kvöld- og helgarþjónustu heilsugæslunnar frá HH og fela hana einkafyrirtæki þegar blasir við að HH hefur fulla burði til að sinna þessari þjónustu með öflugri hætti fyrir minna fé.

Of langt gengið

HH rekur alls 15 heilsugæslustöðvar, ýmist í eigin húsnæði eða leiguhúsnæði. Öllum þessum stöðvum er lokað klukkan 18 en þá tekur LV við allri læknisþjónustu heilsugæslu um kvöld og helgar. Læknavaktin er í leiguhúsnæði á Smáratorgi sem er ekki hentug staðsetning hvað almenningssamgöngur snertir. Aftur á móti rekur HH stóra heilsugæslustöð við Mjóddina sem er mjög hentug staðsetning út frá almenningssamgöngum. Með því að útvista kvöld- og helgarþjónustu heilsugæslu er verið að flækja þjónustustig, gera notendum erfiðara fyrir og gera þjónustuna dýrari. Með því að færa kvöld- og helgarþjónustu heilsugæslu aftur til HH er hægt að spara á bilinu 50-60 milljónir á ári vegna lægri leigugreiðslna og minni kostnaðar vegna yfirstjórnar og samningsgerðar.

Almennt er ég ekki mótfallinn einkarekstri í heilbrigðisþjónustu. Ég tel að á ýmsum sviðum heilbrigðisþjónustu geti einkarekstur þrifist vel eins og í tannlækna-, öldrunar- og sérfræðiþjónustu. Hins vegar er of langt gengið að slíta í sundur þjónustu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins með því að útvista kvöld- og helgarþjónustu og gera heilbrigðisþjónustuna torveldari og dýrari en ella. Betra væri að staðsetja kvöld- og helgarþjónustu heilsugæslunnar í opinberri heilsugæslustöð eins nálægt bráðamóttöku LSH eins og gert er á Akureyri. Í þessu sambandi má nefna að talið er að 15% þeirra sem leita til bráðamóttöku Landspítalans (14-18 þúsund manns á ári) ættu með réttu að leita til heilsugæslu með sín mál.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Skoðun

Skoðun

Yfir­lýsing kennara eftir fund með borgar­stjóra

Andrea Sigurjónsdóttir,Eygló Friðriksdóttir,Guðrún Gunnarsdóttir,Jónína Einarsdóttir,Kristín Björnsdóttir,Lilja Margrét Möller,Linda Ósk Sigurðardóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar

Skoðun

Vá!

Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar

Sjá meira


×