„Við erum að fara yfir úrskurðinn en erum hugsi yfir honum. Í honum virðist vera lögð til grundvallar önnur túlkun á samspili búvörulaga og samkeppnislaga heldur en við og áfrýjunarnefnd höfum byggt á hingað til,“ segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins.

Málið á rætur að rekja til ársins 2007 þegar afurðastöðvar mjólkuriðnaðarins, Kaupfélag Skagfirðinga (KS) og Osta- og smjörsalan, runnu saman í eina samsteypu, Mjólkursamsöluna (MS).
Árið 2012 kvartaði Mjólkurbúið til Samkeppniseftirlitsins og bar því við að það þyrfti að greiða 17 prósentum hærra verð fyrir hrámjólk heldur en keppinautar þess á markaði. Í kjölfarið hófst rannsókn Samkeppniseftirlitsins sem lauk með ákvörðun árið 2014 en sú ákvörðun var felld úr gildi af áfrýjunarnefnd samkeppnismála.
Ný ákvörðun Samkeppniseftirlitsins lá fyrir í sumar en þar var komist að þeirri niðurstöðu að MS hefði brotið gegn 11. grein samkeppnislaga og hefði að auki leynt gögnum frá Samkeppniseftirlitinu. MS var gert að greiða alls 480 milljónir í sekt vegna þessa. Niðurstöðunni var áfrýjað til áfrýjunarnefndarinnar.
Nefndin er skipuð þremur mönnum og klofnaði hún í afstöðu sinni. Bæði meiri- og minnihluti voru sammála um að undanþáguheimildir búvörulaga væru sértækari en Samkeppnislög og kæmu því til álita við úrlausn málsins. Hins vegar voru nefndarmenn ekki sammála um hvort framlegðarsamkomulag MS og KS, frá árinu 2008, rúmist innan undanþágu búvörulaga.

Bæði meiri- og minnihluti telur rétt að staðfesta ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um sekt sökum þess að MS hafi leynt gögnum fyrir eftirlitinu. Fjörutíu milljóna króna sektin fyrir að leyna gögnum var staðfest en 440 milljóna sektin fyrir misnotkun á markaðsráðandi stöðu var felld niður.
Félag atvinnurekenda sendi í gærkvöld frá sér áskorun til Alþingis um að „afnema undanþágu mjólkuriðnaðarins frá samkeppnislögum“. Það sé staðfest að Mjólkursamsalan leyndi gögnum fyrir Samkeppniseftirlitinu. „FA telur ótækt að fyrirtæki sem grunuð eru um samkeppnislagabrot komist upp með að tefja mál með því að leyna gögnum fyrir yfirvöldum.“
Páll Gunnar segir ekki hafa verið ákveðið hvort Samkeppniseftirlitið beri niðurstöðu áfrýjunarnefndarinnar undir dómstóla. „Það er auðvitað það sem við erum að velta fyrir okkur.“
Ari Edwald, forstjóri MS, segir í yfirlýsingu að samkvæmt lögum sé hluti af starfsemi mjólkuriðnaðarins undanþeginn afmörkuðum ákvæðum samkeppnislaga. „Markmið þessa er að lækka kostnað við framleiðslu mjólkurafurða, til ábata fyrir neytendur.“
Af hálfu Mjólkursamsölunnar var meðal annars byggt á því að Páll Gunnar hefði verið vanhæfur við meðferð málsins og því bæri að fella ákvörðun Samkeppniseftirlitsins úr gildi. Ekki var fallist á röksemdir MS í þeim efnum.
Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.