Fótbolti

Viðar Örn hetja Maccabi á útivelli

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Viðar var duglegur að sækja boltann í markið í Svíþjóð.
Viðar var duglegur að sækja boltann í markið í Svíþjóð. vísir/getty
Viðar Örn Kjartansson skoraði bæði mörk Maccabi Tel Aviv í 2-1 sigri á Shmona í ísraelsku úrvalsdeildinni í fótbolta en sigurmarkið skoraði Viðar á 94. mínútu.

Maccabi þurfti nauðsynlega á þessum sigri að halda eftir þrjá leiki í röð án sigurs í ísraelsku deildinni en Viðar sjálfur var ekki búinn að skora í tæplega tvo mánuði.

Viðar jafnaði metin á 38. mínútu eftir að gestirnir lentu undir með góðu skoti en sigurmarkið skoraði hann á 94. mínútu með skalla.

Tókst Viðari því loksins að skora mark en hann verður væntanlega í eldlínunni þegar Maccabi mætir Zenit frá Pétursborg á fimmtudaginn í Evrópudeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×